Hlaupaþjálfari óskast fyrir hlaupahóp í Garðabæ

birt 18. apríl 2005

Hlaupaþjálfari óskast til þess að sjá um hlaupahóp í Garðabæ tvisvar til þrisvar í viku. Hlaupin hefjast við Íþróttamiðstöðina Ásgarð í Garðabæ og eru hlaupaleiðir með því besta og fjölbreytasta sem gerist á Höfuðborgarsvæðinu. Skipuleggja þarf starfið og móta en mikill vilji er fyrir að stofna slíkan hóp í bænum og mikið af stórefnilegum 35+ unglingum sem þarf að stýra.

Vinsamlegast hafið samband við Gunnar Örn Erlingsson íþróttafulltrúa Garðabæjar í 820-8549 eða gunnarer@gardabaer.is