Hlaup.is á afmæli í dag og hefur þjónað hlaupurum á Íslandi í 17 ár. Þakka ykkur hlaupurum fyrir að vera með allan þennan tíma :-)
Fyrsta útgáfan af hlaup.is birtist þann 13. ágúst 1996 (sjá logo hér fyrir neðan) og er hægt að sjá nánari upplýsingar um þróunina á: Um hlaup.is/Saga hlaup.is.
Það hafa orðið töluverðar breytingar frá því 1996, bæði í fjölda þeirra sem stunda hlaup reglulega og framboði á hlaupum. Hér fyrir neðan má sjá lista þeirra hlaupa sem í boði voru árið 1996, en þau voru samtals 21. Til samanburðar má geta þess að á hlaupadagskrá hlaup.is í ár er fjöldi atburða samtals 169 (hlaup, tví og þríþrautir og hjólreiðar).
31.12.1996 Gamlárshlaup ÍR
12.10.1996 Víðavangshlaup Íslands
28.09.1996 Öskjuhlíðarhlaupið
07.09.1996 Selfosshlaupið
18.08.1996 Reykjavíkurmaraþon
08.08.1996 Sri Chinmoy 5000 hlaupið
25.07.1996 Ármannshlaup
14.07.1996 Bláskógaskokk
06.07.1996 Mývatnsmaraþon
30.06.1996 Suðurnesjamaraþon
27.06.1996 Orkuhlaupið
23.06.1996 Miðnæturhlaup
15.06.1996 Akraneshlaup
01.06.1996 Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins
25.05.1996 Húsasmiðjuhlaupið
19.05.1996 Breiðholtshlaup Leiknis
12.05.1996 Smárahlaupið
02.05.1996 Flugleiðahlaupið
01.05.1996 1. maíhlaup Fjölnis og OLÍS
27.04.1996 Námsflokkahlaupið
20.04.1996 Ísfuglshlaupið