Hlaup.is fagnar í dag, 13. ágúst, 23 ára afmæli sínu. Á þessum 23 árum hefur Hlaup.is kappkostað að þjóna hlaupurum á Íslandi, íslenska hlaupasamfélaginu til heilla. Ástæða er til að þakka ykkur hlaupurum fyrir áhugann og samfylgdina allan þennan tíma því án ykkar væri hlaup.is ekki til. Til gamans má geta að hlaup.is vefurinn er eldri en rótgrónir vefir eins og mbl.is og visir.is.
Spennandi tímar eru framundan á hlaup.is. Nú sér fyrir endanum á nokkurra ára vinnu sem mun skila sér í nýjum hlaup.is vef á næstu misserum. Því má segja að þrátt fyrir háan aldur sé hlaup.is á fullri ferð og enn frekar verður gefið í með nýjum vef.
En slíkar breytingar kosta mikla vinnu og fjármuni. Hlauparar geta sannarlega lagt sitt af mörkum með því að kaupa myndir eða skrá sig á hlaupanámskeið á hlaup.is. Hlaupahaldarar geta lagt sitt af mörkum með því að nota skráningarkerfi hlaup.is. Og þá minnum við auglýsendur á þann frábæra kost sem hlaup.is er fyrir hlaupa- og heilsutengdar vörur.
Kæru hlauparar; haldið áfram að koma við á síðunni okkar, glugga í úrslitin, skoða myndirnar, skipuleggja hlaupadagatalið, lesa fréttirnar, skrá ykkur í hlaup, nota hlaupadagbókina og kryfja yfirheyrslurnar. Því fleiri, lengri og betri heimsóknir, því betri síða. Án ykkar gerist ekkert.
Hugmynd verður að veruleika
Í tilefni dagsins þá fá lesendur örlitla innsýn inn í sögu og upphaf hlaup.is. Fyrsta útgáfan af hlaup.is birtist þann 13. ágúst 1996. Það má með sanni segja að hlaup.is hafi verið á undan sinni samtíð enda heimasíður á netinu ekki svo algengar árið 1996. Til marks um það fór hin mæta síða mbl.is ekki í loftið fyrr en 1998.
Tilurð hlaup.is má rekja til þess að umsjónarmaður. Torfi H. Leifsson, hafði um nokkurra ára skeið æft langhlaup með markvissum hætti. Eins og aðrir hlauparar tók umsjónarmaður þátt í mörgum almenningshlaupum, en oft var heilmikið mál að nálgast tímana í hlaupunum. Annaðhvort voru þeir hengdir upp nokkrum klukkutímum eftir að hlaupi var lokið eða jafnvel daginn eftir. Þá var einnig hending hvort dagblöð birtu úrslitin. Það var því sumarið 1996 sem hugmynd kviknaði um að nota Internetið til að miðla úrslitum í almenningshlaupum. Hugmyndin var viðruð meðal nokkurra hlaupafélaga á einni hlaupaæfingunni, þar sem jákvæð viðbrögð fengust og því var ráðist í að setja upp hlaup.is á vefnum og birtist fyrsta útgáfa hennar á vefnum þann 13. ágúst 1996.
En hugmyndin er alltaf sú sama í grunninn, að bjóða hlaupaurum upp á þjónustu og hlaupatengdan fróðleik og afþreyingu. Hlaup.is hlakkar til að þjónusta hlaupara áfram og óskar íslenska hlaupasamfélaginu til hamingju með daginn.