Síðan eins og hún var þegar fór í loftið 1996.Hlaup.is fagnar í dag, 13. ágúst, 18 ára afmæli sínu. Þó ýmislegt hafi breyst á löngum tíma, umfangið aukist og síðan eflst þá er markmiðið ávallt það sama, að þjónusta íslenska hlaupara og stuðla að framgangi og umfjöllun um hlaup á Íslandi.18 ár er langur tími á internetinu og til marks um það má nefna að þegar hlaup.is var sett í loftið á þessum degi árið 1996 voru ennþá tvö ár í að mbl.is hæfi göngu sína.Hlaup.is er stærsta síða sinnar tegundar hér á landi og hér má finna hlaupadagatal (yfirlit yfir almenningshlaup á Íslandi), hlaupadagbók, úrslit úr hlaupum, myndum úr hlaupum svo fátt eitt sé nefnt. En við minnum þó á að síðan er ekkert án lesenda sinna og því hvetjum við ykkur lesendur góðir til að halda áfram að taka þátt í framgangi hlaup.is og um leið halda síðuhöldurum á tánum.
birt 13. ágúst 2014