Að venju verður hlaup.is með bás í Laugardalshöll á morgun föstudag. Hlauparar geta komið við í básnum og verslað ýmsar hlaupavörur á góðu verði þegar þeri sækja gögnin sín og/eða fara í pastaveisluna.
Tilboð á Adidas skóm (7.990) og Asics skóm verður áfram í gildi og einnig verður fatnaður á góðu verði. Barnahlaupaskór frá Asics er nýjung sem vonandi margir foreldrar geta nýtt sér. Skórnir mun kosta 5.500 kr.
Einnig verða til sölu aðrar vörur sem finna má í netverslun hlaup.is, eins og drykkjarbelti, sokka, gel, kolvetnaduft, Garmin og Polar. Þess má geta að Polar mun verða með hlaup.is og kynna allskonar púlsklukkur ásamt fullt af nýjungum frá Polar svo sem samstarf þeirra með Adidas, þar sem Polar kubburinn er innbyggður í skóinn. Allt þetta og meira til á básnum á morgun.