Hlaup.is leitar nú að starfsmanni sem vill taka að sér efnisinnsetningu á hlaup.is og ýmsa umsýslu við vefinn. Efnisinnsetningin felst í að setja inn fréttir, úrslit, greinar, myndir og fleira.
Gert er ráð fyrir að greitt verði fyrir ca. 10-15 tíma vinnu á viku eða um 40-60 tíma á mánuði.
Æskilegt er að umsækjendur séu vanir að vinna á tölvu og gott er að hafa hlaup sem áhugamál !
Vinsamlegast hafið samband við Torfa H. Leifsson, í torfi@hlaup.is eða síma 845-1600 ef þú hefur áhuga á að fræðast meira um starfið.