Hlynur Andrésson tilnefndur sem hlaupari ársins 2017

birt 14. janúar 2018

Hlynur Andrésson er tilnefndur sem langhlaupari ársins 2017 á hlaup.is. Í níunda skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins, bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum eða annarri keppni í langhlaupum. Afrek er afstætt, getur verið góður tími miðað við aldur, óvenjulegt verkefni, þrautseigja og kjarkur eða hvaðeina sem hægt er að meta til viðurkenningar.

Hlynur Andrésson  (24 ára) hefur verið besti langhlaupari landsins í brautarhlaupum undanfarin ár og setti m.a. Íslandsmet í 5.000 m hlaupi 14:00,83 mín í apríl sl. Hann hefur verið við nám í Bandaríkjunum undanfarin ár og því ekki sést mikið í hlaupum hérlendis þar sem hvíldartímabil hans frá hlaupakeppnum hefur verið yfir sumarið.  Tók þátt í hálfmaraþoni RM og sigraði á sínum besta tíma 1:09:08 klst sem er besti árstími Íslendings á vegalengdinni.

Hægt verður að kjósa til kl. 24 fimmtudaginn 18. janúar 2018. Verðlaunaafhending verður sunnudaginn 21. janúar og tilkynnt verður um niðurstöðu kosningar í kjölfarið á því hér á hlaup.is.

Allir sem kjósa fara í pott og geta unnið hlaupaskó.

Smellið hér til að kjósa langhlaupara ársins (athugið að gefa besta hlaupara 6 stig og svo koll af kolli)

Munið að taka þátt í að velja götuhlaup ársins og utanvegahlaup ársins með því að smella hér og gefa einkunn.

Sjá upplýsingar um alla hlaupara sem koma til greina í valinu.