uppfært 25. ágúst 2020

Hlynur Guðmundsson hljóp á frábærum tíma í maraþoni á Spáni (Castellion) um síðustu helgi. Hlynur kom fyrstur í mark í flokknum M45 á tímanum 2:40:16. Sannarlega frábær tími hjá Hlyni.

Þess má geta að þessi tími Hlyns hefði dugað honum í fjórða sæti á ársbesta lista hlaup.is árið 2019.

Hlauparar eru hvattir til að senda okkur tíma Íslendinga í hlaupum erlendis á heimir@hlaup.is.