Hlynur með nýtt Íslandsmet í 3.000m hlaupi innanhúss

birt 04. febrúar 2018

Hlynur er einn af betri hlaupurum landsins.Hauparinn Hlynur Andrésson ÍR sigraði í 3.000 m hlaupi á Ryan Shay Invitational í Notre Dame í Bandaríkjunum, í gær, laugardag. Hann kom fyrstur í mark í hlaupinu eftir frábæran endasprett og hljóp hann á tímanum 8:02,08 mínútum (OT). Er þessi tími nýtt persónulegt met hjá Hlyni en hann var að bæta sig um rúmar 4,5 sek og bætti um leið Íslandsmetið í greininni sem var í hans eigu og var áður 8:06,69 mín.Frábært hjá Hlyni og verður mjög sprennandi að fylgjast með honum á innanhússtímabilinu sem er aðeins rétt að byrja.Þess má geta að Hlynur er sem stendur í 22. sæti á NCAA listanum sem er virkilega flottur árangur

.