Hlynur öflugastur Íslendinga á Norðurlandamótinu

birt 11. nóvember 2018

Hlynur Andrésson náði besta árangri Íslendinga á Norðurlandamótinu í víðavangshlaupum sem fram fór í Laugardalnum í gær, sunnudag. Hlynur hafnaði í sjöunda sæti í karlaflokki.Alls voru 92 keppendur skráðir til leiks frá Norðurlöndunum. Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni í fjórum flokkum; karla- og kvennaflokki og flokki stúlkna og pilta 19 ára og yngri. Stúlkurnar hlupu 4,5 km, piltarnir 6 km, konurnar 7,5 km og karlarnir 9 km. Í liðakeppninni voru stig reiknuð út frá þremur efstu keppendum frá hverju landi fyrir sig. Í karlakeppninni voru það hins vegar fjórir efstu.

Sjö íslenskar konu tóku þátt í kvennaflokki. Anna Emilie Møller kom fyrst í mark á tímanum 27:34. Árangur íslensku kvennanna var sem hér segir:

NafnTímiSætiElín Edda Sigurðardóttir31:0916.Íris Anna Skúladóttir31:1217.Arndís Ýr Hafþórsdóttir31:5018.Helga Guðný Elíasdóttir32:2219.Rannveig Oddsdóttir32:4020.Anna Berglind Pálmadóttir34:2521.Aníta HinriksdóttirLauk ekki keppni

Á heimasíðu FRÍ segir að 20 keppendur af 24 hafi skilað sér í mark. Svíþjóð sigraði i liðakeppni en íslenska liðið hafnaði í fjórða sæti.

Sex íslenskir keppendur voru skráðir til leiks í karlaflokki. Þar sigraði Amanuel Gergis frá Svíþjóð á 28:55. Árangur íslensku karlanna var eftirfarandi:

NafnTímiSætiHlynur Andrésson29:267.Guðni Páll Pálsson32:2723.Þórólfur Ingi Þórsson32:2724.Sæmundur Ólafsson33:2325.Vignir Már Lýðsson34:2726.Vilhjálmur Þór Svansson35:1827.

Danir sigruðu í liðakeppni karla en Íslendingar höfnuðu í fimmta sæti.

Í flokki stúlkna 19 ára og yngri sigraði Moona Korkealaakso frá Finnlandi á tímanum 16:53. Árangur íslensku stúlknanna var eftirfarandi:

NafnTímiSætiMjöll Smáradóttir20:0216.Sólrún Soffía Arnardóttir20:5017.

Finnar sigruðu í liðakeppni stúlkna en Íslendingar höfnuðu í fimmta sæti.

Í flokki pilta 19 ára og yngri sigraði Häkon Stavik frá Noregi á 19:57. Tímar íslensku piltannar voru eftirfarandi:

NafnTímiSætiDaði Arnarson22:5916.Dagbjartur Kristjánsson23:0517.Andri Már Hannesson23:5518.Hlynur ÓlasonLauk ekki keppni

18 af 22 keppendum luku keppni. Noregur sigraði í liðakeppni en Íslendingar höfnuðu í fimmta sæti.

Heimild og mynd: Fri.is.