Hlynur stefnir á ólympíulágmark í maraþonhlaupi

birt 16. febrúar 2018
Hlynur vígalegur i búning háskólaliðs Eastern Michigan.Hlynur Andrésson stefnir á að færa sig yfir í lengri vegalengdir á komandi misserum og í kjölfarið á ólympíulágmark í maraþonhlaupi. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við Hlyn í Morgunblaðinu síðasta laugardag.Undanfarin ár hefur Hlynur einbeitt sér að styttri brautarhlaupum, 3000-5000m hlaupum en hann setti m.a. óopinbert Íslandsmet í 3000m hlaupi í Indiana á dögunum. Auk þess sem hann sló sjö ára gamalt Íslandsmet Kára Steins Karlssonar í 5000m hlaupi í fyrra. Hlynur hefur undanfarin ár verið í háskólanámi í Eastern-Michigan skólanum í Bandaríkjunum þar sem hann æfir og keppir með frjálsíþróttaliði skólans. Þess má geta að Hlynur útskrifast í vor. Það verður því ansi spennandi að fylgjast með þessum efnilega hlaupara á næstunni sem hefur aldurinn með sér enda aðeins 25 ára gamall.EM í Berlín í kortunum?„Eins og staðan er í dag má segja að 5.000 metrarnir séu mín sterkasta grein ásamt kannski 3.000 metrunum. Í mars kem ég til með að hlaupa 10.000 metra hlaup og við sjáum þá hvernig gengur að reyna við Íslandsmetið þar. Fyrstu skrefin eru að reyna að ná Íslandsmetunum á brautunum, ná upp nægilega miklum grunnhraða og færa mig síðan upp í lengri vegalengdir," sagði Hlynur í samtali við Morgunblaðið.Eins og áður segir þá leggur Hlynur stund á nám vestanhafs sem hefur komið í veg fyrir að hann hafi eytt sumrunum á Íslandi í toppformi enda áherslan í háskólaíþróttum þar vestra að frjálsíþróttamenn séu að toppa á vorin. Framundan í vor eru lokamót NCAA sem Hlynur gerir sér góðar vonir um að komast inn á en þar koma jafnan saman margir af efnilegri frjálsíþróttamönnum heims.

En þrátt fyrir að erfitt geti verið að halda sér í toppformi langt fram á sumar hefur Hlynur hugmyndir um að gera atlögu lágmarkinu fyrir EM í Berlín í haust, annaðhvort í 5000m hlaupi eða 3000m hindrunarhlaupi.

Heimild: Morgunblaðið.