Höskuldur kláraði tvöfaldan Ironman á Flórída

birt 05. mars 2013

Höskuldur Kristvinsson kláraði um síðustu helgi "Double Ironman" í Tampa á Flórída. Hann kláraði á 34:55:52 (34 klst, 55 mín og 52 sek) og varð í 15. sæti í karlaflokki og 18. sæti í heildina. Alls voru 36 einstaklingar sem hófu keppnina og 27 sem kláruðu. Einnig voru 2 lið sem kepptu.

Höskuldur er búinn að hlaupa töluvert af ultrahlaupum, m.a. 24 klst hlaupið í Finnlandi sem Gunnlaugur Júlíusson lauk fyrir nokkru, ásamt fjölda maraþona.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðu keppninnar.