Hreyfing býður hlaupurum frítt í morgunverð og fyrirlestur

birt 16. apríl 2008

Fimmtudaginn 17. apríl kl. 08:00 býður Hreyfing hlaupurum í morgunverð, næringarráðgjöf, fitumælingu ofl. í nýju og glæsilegu húsnæði Hreyfingar og Blue Lagoon Spa í Glæsibæ. Aðeins 30 hlauparar komast að á þennan fund.

Dagskrá:

  • Steinar B. Aðalbjörnsson næringarfræðingur - Eldmóðurinn innra með þér - Lærðu  einfaldar reglur sem gera þér kleift að komast í þitt besta form fyrir sumarið.
  • Léttur morgunverður.
  • Einkaþjálfarar bjóða upp á fríar mælingar - fitumæling/blóðþrýstingsmæling

Spennandi tilboð í heilsulindina fyrir boðsgesti.

Látið Júlíus hjá Hreyfingu vita ef þú hefur áhuga með því að senda póst á  julius@hreyfing.is fyrir kl. 16 miðvikudaginn 16.apríl.

ATH. Það komast aðeins 30 hlauparar  á þennan fund. Ekki hika við að hafa samband.