Hringferð Útmeða: Á undan áætlun þrátt fyrir mótvind

birt 04. júlí 2015

Hlaupararnir tólf sem lögðu af stað í hringferð sína á þriðjudaginn, hafa verið á fullri ferð alla vikuna. Þrátt fyrir mikinn mótvind nánast alla leið til Akureyrar þá eru hlaupararnir tæpum tveimur klukkustundum á undan áætlun.Almennur stífleiki í vöðvum er nokkuð algengur í hópnum en liðsmenn bæta það upp með liðleika á andlega sviðinu. "Rútulífið gengur vel og allir eru vinir, ennþá," grínaðist Melkorka Árný Kvaran, einn forsvarsmanna hópsins þegar við heyrðum í henni þar sem hópurinn var staddur á Austfjörðum.

Eins og áður segir gengur ferðin vel og Melkorkar hvetur alla til að leggja málefninu lið, en verkefnið er hluti af forvarnarátaki sem miðar að vitundarvakningu um sjálfsvíg ungra karlmanna. "Þjóðin má því leggjast á eitt og taka upp símtólið og hringja í 904-1500 til að styrkja þetta þarfa verkefni," ítrekar Melkorka.

Allir hvattir til að hlauap síðasta spölinn með hópnum
Mikið verður um dýrðir í húsakynnum Rauða Krossins við Efstaleiti á sunnudaginn kl.12 þegar hópurinn stefnir á að koma í mark. Þá er minnt á að hægt er að hlaupa síðasta spölinn með hópnum, áhugasömum er bent á að mæta við Húsgagnahöllina kl.11 á sunnudagsmorgun.

Hægt er að styrkja átakið um 1.500 kr. með því að hringja í símanúmerið 904 1500 . Einnig er tekið við frjálsum framlögum á söfnunarreikning Geðhjálpar,  546 -14 - 411114, kennitala 531180 - 0469