Á vefnum betrireykjavik.is er að finna áhugaverða hugmynd sem allir hlauparar ættu að hafa áhuga á. Betri Reykjavík er samráðsvettvangur íbúa borgarinnar þar sem hægt er að senda inn hugmyndir sem hugsanlega verða að veruleika fái þær brautargengi innan borgarkerfisins.
Hugmyndin snýst um að koma upp upphitaðri hlaupabraut innan borgarmarkanna en tillöguna má sjá hér að neðan:
"Víða erlendis má finna hlaupabrautir í görðum og grænum svæðum. Þegar færðin er þung leggja margir hlaupaskónum tímabundið og mjög margir leggja markvissu hlaupaæfingunum (interval, pace æfingar).
Þegar erfitt er að finna klakalausar hlaupaleiðir yrði hlaupahringur sem þessi bylting fyrir amatörhlaupara borgarinnar. Undirlagið mætti vera malbik og hringurinn 200 m langur þó draumurinn væri 400m tartanbraut. Staðsetning: þar sem er pláss og margir hefðu aðgang, t.d. Laugardalur eða Klambratún."
Það er nokkuð ljóst að slík aðstaða yrði frábær fyrir reykvíska hlaupasamfélagið og færa má rök fyrir því að fjárfestingin myndi skila sér margfalt til baka með lýðheilsusjónarmið að leiðarljósi. Þá myndi slík hlaupabraut einnig skila sér í bættum borgarbrag og mannvænlegri borg.
Hér má finna tillöguna á betrireykjavik.is. Við hvetjum að sjálfsögðu alla hlaupara og aðra velunnara reykvíska hlaupasamfélagsins til að taka undir þessa góðu tillögu inn á vefnum.