Icelandair hlaupið fer fram 7. maí - kynningarmyndband í loftið

birt 26. apríl 2015

Eitt rótgrónasta hlaup landsins, Icelandair hlaupið fer fram í 21. skipti þann 7. maí. Hinn skemmtilegi Skokkklúbbur Icelandair hefur í aðdraganda hlaupsins sett skemmtilegt kynningarmyndband í loftið. Myndbandið sýnir vel þá skemmtilegu stemmingu og góðu umgjörð sem jafnan skapast í kringum Icelandair hlaupið á ári hverju. Hlaup.is hvetur hlauparar til að taka þátt í þessu skemmtilega hlaupi sem og öðrum almenningshlaupum. Nánari lýsingu á hlaupinu má finna í dagbók hlaup.is en athygli er vakinn á því að skráning fer fram á hlaup.is.