Íslandsmeistaramót öldunga í frjálsum íþróttum fer fram um helgina, 3-4 september á Selfossvelli.
Allar nánari upplýsingar má finna hér að neðan.
1. Aldursflokkar:
Konur: 30-34, 35-39, 40-44, 45-49, 50-54, 55-59, 60-64, 65-69, 70 ára og eldri
Karlar: 35-39, 40-44, 45-49, 50-54, 55-59, 60-64, 65-69, 70 ára og eldri
Keppendur raðast í aldursflokka miðað við afmælisdag en ekki fæðingarár samkvæmt reglum Evrópusambands Öldunga, EVAA. Yngstu keppendur í kvennaflokki eru því fæddir fyrir 3. september 1986 og þeir yngstu í karlaflokki fyrir 3. september 1981.
2. Fyrirkomulag keppninnar
Keppt verður samkvæmt reglugerð FRÍ um Meistaramót Íslands. Drög að tímaseðli fylgja hér með og endanlegur tímaseðill 2 dögum fyrir mótið. Eiginlegur tæknifundur verður ekki haldinn, en mótsstjóri og yfirdómari munu svara spurningum og taka við ábendingum varðandi framkvæmd mótsins frá kl. 10:00 - 10:30 fyrri keppnisdag. Einnig er hægt að skrá sig á þessum tíma og þar til 30 mínútum fyrir upphaf keppni í hverri grein. Keppendur geta komið með eigin kastáhöld til vigtunar kl. 10:30 á laugardeginum.
Kúluvarp karla er að jafnaði vinsæl keppnisgrein. Hefur mótshaldari heimild til að skipta keppnishópi í þeirri grein upp í tvo kasthópa til að stytta biðtíma milli kasta.
Laugardagur: Sunnudagur:
Langstökk karla og kvenna 110 m grind ka., 100 m grind kv.
Kúluvarp karla og kvenna 200 m karla og kvenna
100 m hlaup karla og kvenna 800 m hlaup karla og kvenna
400 m hlaup karla og kvenna 3000 m hlaup karla og kvenna
1500 m hlaup karla og kvenna Sleggjukast karla og kvenna
Hástökk karla og kvenna Spjótkast karla og kvenna
Kringlukast karla og kvenna Lóðkast karla og kvenna
3. Skráningar:
Skráningar fara fram í ÞÓR, mótaforriti FRÍ. Einnig má senda inn skráningar á mótshaldara á netfangið gudmunda89@gmail.com en ekki síðar en fyrir miðnætti fimmtudaginn 1. september. Skráning fer einnig fram á mótsstað og lýkur 30 mínútum áður en keppni hefst í hverri grein. Ekki er nauðsynlegt að keppa undir nafni félags á MÍ öldunga, né er þess krafist að keppt sé í liðsbúningi þó svo að það sé ávallt til sóma á Meistaramóti Íslands.
4. Þátttökugjöld:
Keppendur skulu greiða þátttökugjaldið áður en keppni hefst og er gjaldið 1.500 kr. á grein en að hámarki 4.500 kr. á hvern keppanda. Vinsamlega greiðið þátttökugjald inn á reikning Frjálsíþróttaráðs HSK í síðasta lagi föstudaginn 2. september og framvísið staðfestingu með því að senda kvittun með tölvupósti á hsk@hsk.is. Reikningsnúmerið er 0325-26-003003 kt. 681298-2589. Á keppnistað er mögulegt að greiða með reiðufé.
5. Félagsbúningar og keppnisnúmer.
Æskilegt er að keppendur klæðist félagsbúningi sínum í keppni. Keppendur skulu bera keppnisnúmer sitt að framan, þó er heimilt að hafa númerið aftan á keppnisbúningi í stangarstökki og hástökki.
6. Verðlaun og stigakeppni:
Verðlaun verða veitt á staðnum fyrir þrjú efstu sæti í hverjum aldursflokki. Keppt verður til stiga milli félaga í öllum aldursflokkum samkvæmt reglum FRÍ og farandgripur afhentur því félagi sem er stigahæst. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta afrekið í kvenna og karlaflokki og er þar miðað við stigaútreikninga.
7. Nafnakall:
Fer fram á keppnisstað 15 mínútum áður en keppni hefst í hverri grein. 2-3 æfingaköst og æfingastökk eru leyfð fyrir keppnina.
8. Mótsstjóri & yfirdómari:
Mótsstjóri er Guðmunda Ólafsdóttir, GSM 846-9775, netfang gudmunda89@gmail.com
Yfirdómari skipaður af FRÍ, er Gunnhildur Hinriksdóttir
9. Áhöld og hæðir grinda:
Mótshaldari leggur til öll áhöld en þeir keppendur sem óska eftir að keppa með eigin áhöldum þurfa að leggja þau inn til vigtunar og mælingar hjá mótsstjórn á keppnisstað kl. 10:30 á laugardagsmorgninum.
Keppt verður með kastáhöldum viðkomandi flokka, sem og tilheyrandi hæðum grinda í hverjum flokki. Hægt er að sjá reglugerðir um þyngdir kastáhalda og hæðir grinda á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands http://fri.is/sida/log-og-reglur
Með ósk um góðan árangur og ánægjulegt keppni
F.h. Frjálsíþróttaráðs HSK og Öldungaráðs FRÍ
Guðmunda Ólafsdóttir
Þorsteinn Magnússon