Ármannshlaupið fór fram fyrr í kvöld, þann 10. júlí, en hlaupið var jafnframt Íslandsmeistaramót í 10 km götuhlaupi. Helstu úrslit eru þau að Kári Steinn Karlsson varð Íslandsmeistari karla á tímanum 31:48 og Arndís Ýr Hafþórsdóttir varð Íslandsmeistari kvenna á tímanum 37:06.
Arnar Pétursson varð annar í karlaflokki á tímanum 32:58 eftir hörkukeppni við Ingvar Hjartarson sem var á tímanum 33:00. Í kvennaflokki varð önnur Helen Ólafsdóttir á tímanum 37:30 og í þriðja sæti varð Íris Anna Skúladóttir á 38:04.
3 fyrstu karlar eftir 4 km Arndís Ýr kemur í mark
Kári Steinn kemur í mark