Fjórir Íslendingar taka um þessar mundir (1.- 8.9.2012) þátt í áfangahlaupinu GORE-TEX® TRANSALPINE-RUN 2012 sem fram fer í Ölpunum.
Farið er um þrjú lönd (Þýskaland, Austurríki og Ítalíu) á 8 dögum samtal ca. 320 km og 15000 metra heildarhækkun! Íslendingarnir sem um ræðir eru Christine Buchholz (félagsmaður nr. 30), Anna Sigríður Sigurjónsdóttir (31), Arnar K. Aðalgeirsson og Sigurður Þórarinsson.
Unnt er að fylgjast með þeim undir http://services.datasport.com/2012/lauf/transalpine/ (smellið á "day results" og "ISL").