Íslendingur í Ironman þríþraut í Sviss

birt 26. júní 2006

Þann 2. júlí mun Ásgeir Jónsson taka þátt í Ironman þríþraut sem fram fer í Zurich í Sviss. Ásgeir er búinn að undirbúa sig vel fyrir þrautina, en hún samanstendur af 3 greinum, 3,8 km sundi, 180 km hjólreiðum og 42,2 km hlaupi.

Á vefsíðu Ásgeirs er hægt að lesa um fyrirætlanir hans næstu árin, en þær eru mjög metnaðarfullar. Þar heldur hann líka út bloggi þar sem hann lýsir undirbúningi sínum fyrir þríþrautina.

Hlaup.is styrkir Ásgeir í sumar.