Hlífum þér - ráðgjöf fyrir hlaupara við val á skóbúnaði
Sjötti fræðslufundurinn í ellefu funda röð hjá Stoð í tilefni af 30 ára starfsafmæli.
Fimmtudaginn 7. júní næstkomandi frá kl. 14 - 16 á Hótel Hafnarfirði, Reykjavíkurvegi 72 mun Stoð - Stoðtækjasmíði halda fyrirlestur um algengustu meiðsl íþróttafólks, hvað er til ráða og hvernig spelkur og hlífar geta hraðað bataferlinu. Farið verður yfir mikilvægi rétts skóbúnaðar og hvað ber að hafa í huga við val á skóm.
Við viljum hvetja íþróttafólk, íþróttafræðinga, þjálfara, sjúkraþjálfara og aðra sem koma að þjálfun og meðhöndlun á íþróttafólki til að fjölmenna á fyrirlesturinn og njóta góðs af. Fyrirlesturinn er opinn öllum og að kostnaðarlausu en við hvetjum einstaklinga og félög til að skrá sig hjá helena@stod.is.
Fyrirlesarar eru:
Elís Þór Rafnsson, B.Sc í sjúkraþjálfun og MSc í íþróttasjúkraþjálfun sem hefur jafnframt verið sjúkraþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik undanfarin 10 ár.
Marianne Johansson, B.Sc í sjúkraþjálfun og sölustjóri Otto Bock/Rehband í Danmörku
Að fyrirlestrinum loknum munu Helena Bjarndís, íþróttafræðingur og Einar Stefánsson, sjúkraskósmíðameistari veita ráðgjöf um val á hlaupaskóm.
Allar vörur verða með frábærum afslætti og má þar nefna Asics hlaupaskó, Rehband íþróttahlífar, fatnað, Squeezy gel, Leppin fæðubótarefni og Kinesio tape svo eitthvað sé nefnt.
Ekki láta þetta tækifæri fram hjá þér fara. Boðið verður upp á léttar veitingar á milli fyrirlesara.
Hjá Stoð starfa nú 29 manns á Íslandi og fimm hjá dótturfyrirtækinu Bandagist.dk í Danmörku. Í starfsmannahópnum eru stoðtækjafræðingar, skósmiðir, stoðtækjasmiðir, þroskaþjálfi, íþróttafræðingur og fleira reynslumikið fólk. Stoð leitast við að veita einstaklingum sem vegna meiðsla, fötlunar eða veikinda þurfa á stuðningi við líkama sinn að halda framúrskarandi þjónustu sem byggð er á sérþekkingu og reynslu starfsmanna. Ennfremur kappkostar Stoð að veita sérfræðingum og starfsmönnum á endurhæfingar- og bæklunarsviði þjónustu með upplýsingamiðlun og stuðningi, svo þeir eigi auðveldara með að sinna skjólstæðingum sínum.