Íþróttamótið Íformi helgina 19.-20. september

birt 13. september 2008

Íþróttamótið Íformi (fyrir 30 ára og eldri) verður haldið á Hornafirði helgina 19. til 21. september og eru allir hvattir til að skrá sig sem að hafa aldur til. Bíður fólk í formi á Hornafirði spennt eftir verðugum andstæðingum allstaðar af landinu til að etja kappi við. Keppt verður í badminton, blaki, bridge, fótbolta, frjálsum og golfi

Skráning er hafin á heimasíðumótsins http://www.iformi.is/ og þar er einnig hægt að finna allar nánari upplýsingar um aldurstakmark og keppnisgreinar. Mikilvægt er að fólk skrái sig sem fyrst svo gistiaðilar á svæðinu geti gert ráðstafanir og mótstjórn hafi ráðrúm til gera sameiginlegan kvöldverð sem glæsilegastan.