Ívar Jónsson í íslenska "Big six" klúbbinn

birt 11. nóvember 2018

Ívar Jónsson er formlega genginn í félagsskap íslenskra hlauparar sem hafa lokið sex stóru, Abbot World Marathon Majors. Ívar lokaði hringnum í New York maraþoninu i byrjun nóvember.

Þar með hafa sautján Íslendingar náð þeim áfanga að ljúka sex stóru, Berlín, London, Boston, Chicago, New York og Tokyo.

Fleiri og fleiri Íslendingar bætast í hópinn og hefur fjölgað töluvert í félagsskapnum á þessu ári eins og t.d. var fjallað um í mars síðastliðnum.

Sautján íslenskir hlauparar hafa því lokið við sex stóru, Abbot World Marathon Majors í dag. Lista yfir Íslendinga sem hlaupið hafa sex stóru má sjá hér að neðan. Við hvetjum íslenska hlaupasamfélagið til að vera á verði og senda okkur ábendingar um nýja félaga í "Big six" klúbbnum á heimir@hlaup.is.

Íslendingar sem hafa lokið sex stóru 11.11.2018.
Friðrik Ármann GuðmundssonUnnar HjaltasonMagnús GottfreðssonGunnar ÁrmannssonBjörn Jakob BjörnssonGunnar "sprettur" GunnarssonÓlafur Jón ÁsgeirssonRúna HauksdóttirÞórarinn Óli ÓlafssonJón Kristinn HaraldssonÁrni Esra EinarssonÓmar Torfason                 Sigurlaug HilmarsdóttirJóhann Ottó WathneGuðmundur BreiðdalBjörn Rúnar LúðvíkssonÍvar Jónsson