Kári Steinn Karlsson setti glæsilegt nýtt Íslandsmet í maraþonhlaupi í Berlínarmaraþoninu. Hann hljóp á 2:17:12 klst og bætti Íslandsmetið um tvær og hálfa mínútu og náði auk þess Ólympíulágmarkinu fyrir London 2012 sem var 2:18:00. Hlaup Kára Steins var mjög jafnt og vel útfært. Fór í gegnum hálfmaraþonið á 1:07:58. Meðalhraði hans í hlaupinu var 3:17 mín pr. km.
Hlaup.is óskar Kára Steini til hamingju með þennan frábæra árangur.