Mary Keitany frá Keníu setti heimsmet kvenna í maraþoni í dag í London maraþoninu. Keitani hljóp á 2:17:01.
Í karlaflokki sigraði hinn 24 ára gamli Daniel Wanjiru, einnig frá Keníu.Hann hafði betur eftir mikla baráttu við heimsmethafann í 5000 og 10000 metra hlaupi, Kenenisa Bekele.
Mikið var um dýrðir í London í dag eins og jafnan þegar London maraþonið fer fram en Harry Bretaprins afhenti sigurvegurunum verðlaunin.