Metskráning er í utanvegahlaupið Hengill Ultra sem haldið verður í Hveragerði þann 8. september næstkomandi. Metfjöldi þátttakenda verður í Hengill Ultra í ár og eru keppendur frá fimmtán þjóðlöndum skráðir til leiks. Hlaupararnir koma frá Bandaríkjunum, Kanada, Nýja Sjálandi, Danmörku, Póllandi, Frakklandi, Spáni, Sviss, Bretlandi, Þýskalandi, Austurríki, Tékklandi, Færeyjum og auðvitað Íslandi.
Hengill Ultra er lengsta utanvegahlaup á Íslandi, þar sem sex mismunandi keppnisleiðir og möguleikar eru í boði, 100 km, 50 km, 25 km, 10 km og 5 km. Að auki er boðið upp á fjórum sinnum 25 km boðhlaup sem er nýjung í Hengill Ultra í ár. Í Hengill Ultra er m.a. hlaupið í gegnum Reykjadalinn, þá fallegu náttúrperlu, upp að Ölkelduhnjúk og í kringum hann. Þá hlaupaleið segja gárungarnir að sé eina utanvega hlaupaleiðin í heiminum með innbyggðum heitum pottum.
Verðlaunahafar í Hengill Ultra 2017.
Hlaupaleið
Byrjunarreitur allra vegalengda og mótsstjórn verður við veitingastaðinn og gistiheimilið Skyrgerðina í hjarta Hveragerðis. Gjafapoki með óvæntum glaðningi frá samstarfsaðilum er innifalinn í skráningu fyrir alla sem skrá sig fyrir miðnætti sunnudaginn 2. september. Hengill Ultra er síðasta stóra hlaup sumarsins og má því segja að um sé að ræða uppskeruhátíð íslenskra hlaupara.
Heilmargt í boði
Eftir hlaupið er öllum keppendum boðið í sveittan borgara frá "The Finish Line Burger Joint" sem er ein besta POP-UP borgarabúllan á landinu. Öllum keppendum er einnig boðið í sund og rólegheit í lystigarðinum í Hveragerði. Verðlaunaafhending og grillveisla fyrir keppendur og aðstandendur fer fram kl 17:00. Allir hlauparar hlaupa með tímatökuflögur. Á verðlaunaafhendingunni verður dregið úr glæsilegum útdráttarvinningum. Allir fá eitthvað til minningar um þátttökuna í þessu mikla afrekshlaupi.
Slagorð hlaupsins er „Allir hlaupa, allir vinna og allir velkomnir"
Hlaupaleiðirnar í Hengill Ultra eru sannarlega magnaðar.
UTMB PUNKTAR
Þátttaka í 25 km, 4X25 km, 50 km og 100 km vegalengdunum í Hengill Ultra tryggir keppendum þátttökupunkta í hinum heimsfrægu Mont Blanc hlaupum. Fjöldi hlaupara kemur erlendis frá til að taka þátt í Hengill Ultra því slík punktagjöf býðst ekki hvar sem er í heiminum. Hengill Ultra, Mount Esja Ultra og Laugavegshlaup ÍBR eru einu hlaupin á Íslandi sem státa af samstarfi við þetta rómaða stórmót utanvegahlaupara.
Samstarfið við UTMB tryggir keppendum eftirfarandi punkta fjölda:
- Þátttaka í 25 km hlaupinu tryggir keppendum 1 UTMB punkt
- Þátttaka í 4x25 km boðhlaupinu tryggir hverjum hlaupara 1 UTMB punkt
- Þátttaka í 50 km hlaupinu tryggir keppendum 3 UTMB punkta
- Þátttaka í 100 km hlaupinu tryggir keppendum 5 UTMB punkta
Skráning og nánari upplýsingar á heimasíðu hlaupsins.