Hlaupahópur Stjörnunnar er nýbúinn að halda glæsilegt Stjörnuhlaup og nú býður hann öllum konum á Reykjavíkursvæðinu í Kvennhlaupið í Garðabæ 4 júní. Þetta er skemmtiskokk fyrir allar konur á öllum aldri og markmiðið er að koma með bros á vör í mark og hafa gaman.
Dagskráin er eftirfarandi:
- Kl. 13:30 Upphitun
- Kl. 13:50 Ávarp
- Kl. 14:00 verða öll hlaup ræst 2 km, 5 km og 10 km.
Nánari upplýsingar um Sjóvá Kvennhlaup ÍSÍ og hlaupastaði um land allt má finna á heimasíðu hlaupsins.