Kynna komandi nýjungar á hlaup.is á aðalfundi Félags maraþonhlaupara

birt 17. nóvember 2015

Torfi H. Leifsson, umsjónarmaður hlaup.is mun halda erindi á aðalfundi Félags maraþonhlaupara sem fer fram á morgun, miðvikudagskvöld kl. 20. Þar mun Torfi segja frá ýmsu spennandi sem er að gerast á hlaup.is s.s. úrslitagrunni með úrslitum í öllum götuhlaupum síðustu 30 árin hér á landi og tímum í maraþonhlaupum erlendis (maraþonskráin), viðbót við æfingadagbókina, „Mínum myndasíðum" og hlaupa appi í síma sem tengist æfingadagbók. Þá mun Torfi einnig fara yfir breytingar sem standa fyrir dyrum á hlaup.is er varða útlit og virkni á síðunnar.

Fundurinn fer fram annað kvöld, miðvikudag kl.20, í húsnæði Ferðaþjónustu bænda að Síðumúla 2.