Kynning á nýjung í þróun líkamlegrar getu

birt 27. desember 2018

Kynntu þér nýja leið til þess að bæta árangurinn sem íþróttamaður, hvort sem þú æfir sund, hlaup, þríþraut, hjólreiðar eða aðrar íþróttagreinar.

OptimizaR Sportstestcenter mun kynna nýja testgreiningu sem virkilega skiptir máli í þróun líkamlegrargetu íþróttamanna á hvaða stigi sem er. Kynningin fer fram í Pálsstofu í húsakynnum Laugardalslaugar kl. 19-20.30, í kvöld, 27. desember.

Þessi testgreining gefur iðkanda og þjálfara upplýsingar um þolgetu (aerobic capacity) og sprettgetu (anaerobic capacity) sem nú er auðveldara að greina í hvaða íþróttagrein sem er.

Greiningin gefur upplýsingar um hvaða þætti viðkomandi íþróttamaður þarf að æfa betur eða einblína á til þess að bæta árangur i keppni.

OptimizaR hefur notað þetta greiningarkerfi fyrir landsliðsfólk Sundsambands Íslands með mjög miklum afreksbætingum. 

Fundurinn er ókeypis. Verið velkomin.

Viðburðurinn á Facebook.

Meiri upplysingar um testgreininguna á heimasíðu Opimizar.