Kynningarfundur Bændaferða: Langar þig að hlaupa erlendis 2015?

birt 11. janúar 2015

Að taka þátt í New York maraþoninu er upplifun sem aldrei gleymist.Hlaupa- og maraþonkynning verður haldin mánudagskvöldið 12. janúar kl. 20:00 í húsakynnum Bændaferða í Síðumúla 2, 2. hæð. Bændaferðir eru með umboð fyrir öll stóru maraþonin og einnig verða kynntar ferðir í önnur maraþon eins og Salzburg, Munchen og Amsterdam.Kynningin er kjörin fyrir þá sem hafa áhuga á að hlaupa erlendis í ár en þjást af valkvíða þegar velja á hlaup. Mætið á fundinn, kynnnist hlaupaunum og borgunum og takið upplýsta ákvörðun.Bændaferðir vilja undirstrika að allir eru velkomnir á kynninguna.