Minni á kynningarfundinn um maraþon hlaup á Kínamúrnum hjá Ferðaþjónustu bænda í Síðumúla 2, miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20.00.
Ferðaþjónusta bænda býður upp á spennandi ferð til Kína í vor þar sem helsti tilgangur ferðarinnar er að hlaupa á Kínamúrnum, fara í hjólaferð uppi í sveit og skoða í leiðinni það helsta í Peking og Xian. Sambærileg ferð var fyrst farin í fyrra og tókst hún mjög vel.
Fararstjóri ferðarinnar er Eggert Claessen og sérstakur ráðgjafi hópsins varðandi sjálft hlaupið er Pétur Frantzson, þjálfari Laugaskokks.
Athugið sérstakleg að hægt er að hlaupa 5 km 10 km hálft maraþon og heilt maraþon. Sjá nánar frétt um ferðina.