Aðstandendur Brúarhlaupsins á Selfossi hafa ákveðið að lækka verð á 10 km og 21 km hlaupinu til samræmis við það sem verðið var í fyrra. Nú kosta 10 km 3.000 kr og 21 km kostar 3.500 kr. Þeir aðilar sem greitt hafa gamla og hærra verðið munu fá endurgreiðslu.
Síðan er hægt að afþakka bol, og þá kostar 10 km hlaupið 2.500 og 21 km 3.000 kr.