Langhlauparar ársins 2009 hafa verið valdir

birt 17. janúar 2010

Hlaup.is stóð í fyrsta sinn fyrir á vali á langhlaupurum ársins (sjá nánar). Valið fór þannig fram að lesendum síðunnar var boðið að velja á milli fimm karla og fimm kvenna sem valnefnd hafði tilnefnt eftir ábendingum frá lesendum. Niðurstaða kosningarinnar hafði 50% vægi á móti 50% vægi valnefndar. Við valið var afrek metið út frá tímamælingu, aldri, sérstöðu, kjarki og þrautseigju.

Langhlaupari karla er Gunnlaugur Júlíusson fyrir frábæran árangur í ofurhlaupum. Þar bar hæst sigur hans í  í 48 klst. hlaupi í Bornholm þar sem hann hljóp samtals 334 km sem er annar besti árangur Norðurlandabúa á árinu og ellefti besti árangur karla í heiminum sem og besti heimsárangur karla á árinu í flokki 55 ára og eldri.

Langhlaupari kvenna er Hólmfríður Vala Svavarsdóttir fyrir að sigra í Laugavegshlaupinu á  5:33:10 klst. Árangur hennar var í senn góður og óvæntur enda aðeins tveimur mínútum frá besta árangri íslenskrar konu á Laugaveginum.

Gunnlaugur og Hólmfríður fengu verðlaunagrip frá hlaup.is ásamt 30 þús kr. gjafabréfi frá Íslandsbanka og Under Armour hlaupaskó frá Altis ehf. Allir þeir sem tilnefndir voru fengu bækur frá Forlaginu sem viðurkenningu.

Á annað hundrað tilnefningar til langhlaupara ársins 2009 bárust og voru samtals 32 hlauparar tilnefndir sem sýnir að fjölmargir hlauparar hafa verið að gera frábæra hluti á árinu 2009. Alls bárust 1754 atkvæði frá um 900 manns og voru úrslitin afgerandi. Þeir aðilar sem lentu í sætum 2-5 bæði í karla- og kvennaflokki, skiptu hins vegar bróðurlega með sér restinni af atkvæðunum og er þar ekki um marktækan mun að ræða, svo jöfn var keppnin um þau sæti.

Í verðlaunaafhendingu sem haldin var í dag laugardaginn 16. janúar, voru eftirfarandi myndir teknar.

Gunnlaugur Júlíusson og Hólmfríður Vala Svavarsdóttir með verðlaun sín

Hópurinn sem var tilnefndur. Frá vinstri talið: Birgir Sævarsson, Sigurbjörg Eðvarðsdóttir, Þorbergur Ingi Jónsson, Ágúst Kvaran, Jóhann Karlsson, Veronika S. Bjarnadóttir, Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Gunnlaugur Júlíusson og Bryndís Svavarsdóttir. Á myndina vantar Mörthu Ernstsdóttur.

Sigurður Pétur afhendir Jóhanni Karlssyni viðurkenningu

Torfi H. Leifsson umsjónarmaður hlaup.is, afhendir Hólmfríði sigurlaunin.