Síðasta Powerade hlaup vetrarins er næstkomandi fimmtudag, 10. mars. Byrjar stundvíslega klukkan 20:00 við Árbæjarlaugina. Skráning hálftíma fyrir hlaup í anddyri laugarinnar.
Daginn eftir, á föstudeginum verður síðan haldið lokahóf í Húnabúð, félagsheimili Húnvetningafélagsins, Skeifunni 11. Lokahófið hefst klukkan 20:00. Verðlaunaafhending, léttar veitingar og ógrynni útdráttarverðlauna. Allir þátttakendur og velunnarar hlaupsins velkomnir.