birt 07. mars 2006

Síðasta hlaup vetrarins er á fimmtudaginn næstkomandi 9. mars.  Byrjar að venju stundvíslega klukkan 20:00 við Árbæjarlaugina.  Skráning hálftíma fyrir hlaup í anddyri laugarinnar.

Á föstudaginn, daginn eftir síðasta hlaup, verður lokahóf Vetrarhlaupsins haldið í Félagsheimili Fáks í Víðidal.  Hátíðin byrjar klukkan 20:00.  Boðið verður uppá léttar veitingar.  Veitt verða verðlaun í heildarstigakeppni og í stigakeppni aldursflokka.  Þátttökuseðlar vetrarins verða síðan notaðir til að draga út margvísleg verðlaun meðal viðstaddra.

Sjáumst hress í síðasta hlaupið og fjölmennum í lokahófið, allir velkomnir.