birt 28. febrúar 2017

Forsvarsmenn Vestmannaeyjahlaupsins hafa gefið út skemmtilegt myndband sem sýnir vel stemminguna í þessu magnaða hlaupi. Eins og hlauparar vita var Vestmannaeyjahlaupið valið götuhlaup ársins 2016 á hlaup.is fyrir skömmu.

Þeir sem hafa tekið þátt í hlaupinu eða komið til Vestmannaeyja vita hversu mögnuð upplifun það er virða fyrir sér hið mikilfenglega landslag sem Eyjarnar bjóða upp á. Drónarnir koma upplifuninni vel til skila í þessu stórskemmtilega myndbandi enda náttúran engu lík í Eyjum. Ástæða er til að hvetja hlaupara til að deila myndbandinu með erlendum hlaupavinum sem varla hafa séð annað eins.  Að vanda hvetjum við hlaupahaldara til að senda hlaup.is sambærileg upphitunar- og stemmingsmyndbönd á heimir@hlaup.is.

Vestmannaeyjahlaupið fer fram 2. september í ár.