Magnús Gottfreðsson hlaupari komst í fríðan flokk um helgina þegar hann kláraði Tokyo maraþonið. Þar með hefur hann lokið við hin goðsagnakenndu "sex stóru" þ.e. maraþonin í Tokyo. New York, Boston, Chicago, Berlín og London. Hlaup.is er í það minnsta kunnugt um tvo aðra Íslendinga sem hafa unnið sama afrek, en Friðrik Ármann Guðmundsson og Unnar Hjaltason luku við "Big six" í október 2015. Umfjöllun hlaup.is um það afrek er að finna hér. Hlaup.is óskar Magnúsi innilega til hamingju með þetta magnaða afrek og vonast til þess að geta birt viðtal við hann innan skamms.
Skjáskot af fésbokarsíðu Magnúsar.