Laugardaginn 11. júlí verður Landsmótshlaup á Akureyri, þar sem boðið verður upp á fjórar vegalengdir; heilt maraþon, hálft maraþon, 10 km og skemmtiskokk. Um er að ræða hið árlega Akureyrarhlaup, sem ákveðið var að þessu sinni að fella inn í 26. Landsmót UMFÍ, sem verður haldið á Akureyri dagana 9. til 12. júlí í sumar, og jafnframt var í tilefni af 100 ára afmæli landsmótanna ákveðið að bjóða einnig upp á heilt maraþon í fyrsta skipti í sögu Landsmóta UMFÍ og jafnframt verður þetta í fyrsta skipti sem maraþon verður hlaupið á Akureyri.
birt 14. apríl 2009