Meira af hlaupaferð til Suður-Afríku

birt 11. september 2005

Kæru hlauparar,
 
Það hafa margir haft samband við okkur Úlfar vegna hlaupaferðar til Suður Afríku næsta vor. Ég hafði samband við breska ferðaskrifstofu, sem hefur netfangið info@sportresort.net  og slóðina www.sportresort.net. Hún býður eftirfarandi:
 
1) Ferð með KLM
 
11. apríl London Heathrow-Amsterdam 06:35 - 9:00
            Amsterdam-Cape Town 10:20 - 21:55
 
Innifalið yrðu 7 nætur á Best Western Cape Suites með morgunverði.
Pakkinn kostar GBP 995.- per mann.
 
2) Beint flug frá London með British Airways myndi með gistingunni kosta GBP 1125.- per mann.
 
Hvort tveggja er þó háð því að nægileg sæti séu til staðar svo áhugasamir ættu að fara að huga að bókunum.
 
Hægt er að bóka sig í hlaupið í gegnum þessa ferðaskrifstofu, en það er einnig hægt á heimasíðu hlaupsins, twooceansmarathon.za. Það er byrjað að bóka núna.
 
3) Ég hef líka haft samband við ferðaskrifstofuna Prima-Embla, sem hefur í hyggju að efna til hópferðar til Suður Afríku á sama tíma, en mjög líklega verður þó ekki um beint flug að ræða. Því miður liggur ekki fyrir enn nákvæm ferðatilhögun eða verð en á að skýrast fljótlega.
 
Bestu kveðjur,
 
Bryndís Magnúsdóttir