Meistaramót öldunga fer fram um helgina

uppfært 25. ágúst 2020

Meistaramót Íslands öldunga verður haldið dagana 8. og 9. febrúar 2020 í Laugardalshöllinni. Mótið hefst báða daga kl. 10:00, áætlað er að því ljúki kl. 13:00, báða dagana. Nafnakall fer fram á keppnisstað 15 mínútum fyrir hverja grein. Skráning fer fram á netinu.  

Keppnisgreinar:

  • 60 m hlaup, 200m hlaup, 60 m grindahlaup
  • 400m hlaup, 800 m hlaup, 3000 m hlaup
  • Hástökk, Langstökk, Stangarstökk, Kúluvarp, Þrístökk

Aldursflokkar
Keppt er í fimm ára aldursflokkum frá 30-34 ára karla og kvenna. Keppendur raðast í aldursflokka miðað við afmælisdag

Skráning
Opið er fyrir skráningu keppenda til og með 6. febrúar. Einnig er mögulegt að senda skráningu á netfangið irfrjalsar@gmail.com með „MÍ Öldunga - Skráning" í efni (e. subject) póstsins. Í póstinum þarf að koma fram fullt nafn, félag, kennitala og keppnisgreinar. Þá verður einnig tekið við skráningum í andyri Laugardalshallar fimmtudaginn 6. febrúar frá 12-13 og 19-20. Ekki verður tekið við skráningum á staðnum.

Þátttökugjald er 1500 kr. á hverja grein, en að hámarki 4500 kr, sem greiðist áður en keppni hefst. Tekið verður við peningum og kortum og greiðast þátttökugjöld áður en keppnisnúmer verða afhent. Verðlaun verða samkvæmt venju afhent á staðnum fyrir þrjú efstu sæti í hverjum aldursflokki.

Frekari upplýsingar veitir, Helgi Björnsson, irfrjalsar@gmail.com, 865-5194