Frjálsíþróttadeild Ármanns og Frjálsíþróttasamband Íslands standa fyrir Meistaramóti öldunga um helgina, 24.-25. Janúar í Laugardalshöll
Á Meistaramótinu verður keppt í eftirfarandi aldursflokkum beggja kynja: 35-39, 40-44, 45-49, 50-54, 55-59, 60-64, 65-69, 70 ára og eldri, auk 30-34 ára flokks kvenna. Raðað er í aldursflokka miðað við afmælisdag. Hlauparar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á mótinu en m.a. er keppt í 800 m og 3000m hlaupi.
Mótið hefst báða daga kl. 10:00, áætlað er að því ljúki kl. 13:00, báða dagana. Nafnakall fer fram á keppnisstað 15 mínútum fyrir hverja grein. Á laugardag er keppt í 60 m , 200 m, 800 m, kúluvarpi, langstökki og hástökki. Á sunnudag er keppt í 60 m grind, 400 m, 3000 m, þrístökki, stangarstökki og lóðkasti
Opið er fyrir skráningu keppenda til miðnættis fimmtudag 22. janúar gegnum mótaforrit FRÍ. (þarfnast innskráningar). Einnig er mögulegt að senda skráningu á netfangið skraning@frjalsar.is. Einnig er hægt að skrá sig á staðnum 30 mínútum áður en mótið hefst.
Þátttökugjald er 1500 kr. á hverja grein, en að hámarki 4500 kr, sem greiðist áður en keppni hefst. Hægt er að leggja keppnisgjald inn á reikning frjálsíþróttadeildar Ármanns 301-26-001150 kt.491283-0339. Senda skal tilkynningu um greiðslu á netfangið gjaldkeri@frjalsar.is