birt 25. febrúar 2005

Meistaramót öldunga innanhúss 2005 fer fram í Baldurshaga og í íþróttasal í nágrenni hans laugardaginn 12. mars nk. eftir hádegi. Mótið er í umsjón Frjálsíþróttadeildar ÍR.

Skráning fer fram á staðnum.

Keppnisgreinar og aldursflokkaskipting verða í samræmi við reglugerð FRÍ um mótið.

Þó verður að gera eina undantekningu: Þar sem Egilshöllin verður lokuð þessa helgi vegna tónleikahalds verður að færa stangarstökkskeppni á annan dag. Þeir sem hafa hug á að keppa í stangarstökki eru beðnir að hafa samband við mótshaldara með góðum fyrirvara.

Nánari upplýsingar um mótið verða sendar út er nær dregur.

Upplýsingar veita Stefán (897-0333) og Þráinn (863 1700).