Meistaramótshlaup í sumar í 5, 10, 21,1 og 42,2 km

birt 30. mars 2013

Á fundi stjórnar FRÍ hefur eftirtalin staðsetning fyrir Meistarmótshlaupi götuhlaupa 2013 ákveðin:

1) MÍ í 5 km götuhlaupi karla og kvenna verði í umsjón ÍR og verði hluti af Víðavangshlaupi ÍR á Sumardaginn fyrsta 25. apríl.
2) MÍ í 10 km götuhlaupi karla og kvenna verði í umsjón Ármanns og verði hluti af Ármannshlaupinu sem fram fer 10. júlí.
3) MÍ í hálfmaraþonhlaupi karla og kvenna verði í umsjón UFA og verði hluti af Akureyrarhlaupinu sem fram fer 22. júní.

Áður hefur verið samþykkt að MÍ í maraþonhlaupi karla og kvenna verði hluti af Reykjavíkurmaraþoni.