Laugardaginn 15.júlí næstkomandi fer Laugavegshlaupið fram í 21. sinn. Alls eru 511 hlauparar skráðir til keppni, 178 konur og 333 karlar. Aldrei hafa fleiri verið skráðir til þátttöku í Laugavegshlaupinu en nú.
Íslenskir þátttakendur eru 249 talsins og frá öðrum löndum 262. Fjölmennastir erlendu gestanna eru Bandaríkjamenn en þeir eru 87 skráðir, þá Bretar sem eru 25 talsins og þriðja fjölmennasta þjóðin eru Þjóðverjar sem eru 24 skráðir til þátttöku. Þátttakendur í hlaupinu eru af 32 mismunandi þjóðernum.
Hlaupið hefst í Landmannlaugum og lýkur í Húsadal í Þórsmörk. Eins og margir vita er Laugavegurinn ein fjölfarnasta og vinsælasta gönguleiðin um íslensk öræfi. Venjan er að ganga leiðina á fjórum dögum en met hlauptími á þessari 55 km leið í Laugavegshlaupi er 3 klukkustundir og 59 mínútur í karlaflokki og 5 klukkustundir í kvennaflokki.
Hlaupið hefst við skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum, laugardaginn 15.júlí 2017 klukkan 9.00 og lýkur við skála Ferðafélagsins í Húsadal í Þórsmörk. Tímamörk eru í hlaupinu og þurfa hlauparar að vera komnir í Álftavatn (22 km) á innan við 4 klst og í Emstrur (34 km) á innan við 6 klst. Það er því aðeins fyrir vel æfða hlaupara að taka þátt í þessari miklu þolraun.
Á morgun fimmtudag 13.júlí milli 12 og 17 og föstudag 14.júlí milli 9 og 17 koma þátttakendur í Laugardalshöll til að sækja keppnisgögn sín.
Við minnum þátttakendur á að hlaup.is verður á staðnum og tekur myndir. Myndirnar verða til sölu á hlaup.is bæði í ljósmyndaformi og á stafrænu formi. Við hvetjum hlaupara til kaupa myndir og um leið styrkja við starfsemi hlaup.is.