birt 24. júní 2005

Ekki tókst að ná upplýsinumg úr "eyrunum" sem geyma skrána með flögunum og tímunum í kvöld. Reikna má með að þessar upplýsingar náist á morgun föstudag og þá verða úrslitin birt.

Það voru 219 keppendur skráðir í 5 km hlaupið og 186 í 10 km hlaupið. Við höfum ekki ennþá talið þá sem skráðir voru í 3 km hlaupið.

Fyrstu 3 konur í 5 km hlaupinu voru Hrönn Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Eðvarðsdóttir og Bryndís Magnúsdóttir. Fyrstu 3 karlar í 5 km hlaupinu voru Árni Richard Árnason, Jón Jóhannesson og Gísli Hrafn Karlsson.

Fyrstu 3 konur í 10 km hlaupinu voru Martha Ernstsdóttir, Bryndís Ernstsdóttir og Eva Margrét Einarsdóttir. Fyrstu 3 karlar í 10 km hlaupinu voru Birkir Marteinsson, Gauti Höskuldsson og Guðmann Elísson.

Úrslit verða sett inn á hlaup.is um leið og þau berast.