Mikil þátttaka í Icelandair hlaupinu í kvöld

birt 04. maí 2006

Allt stefnir í metþátttöku í Icelandair hlaupinu sem fram fer í kvöld, en Icelandair hlaupið hefur unnið sér sess í huga hlaupara sem eitt af stóru og vel skipulögðu hlaupunum sem upplagt er að taka þátt í til að ná úr sér vorfiðringnum.

Þegar forskráningu lauk í hádeginu á hlaup.is, höfðu 170 manns skráð sig á netinu. Netskráningin er til mikils hægðarauka fyrir skipuleggjendur hlaupsins og hlaupara sem geta gengið beint að keppnisnúmerum sínum og fengið þau afhent án nokkurrar tafar.

Hlaup.is verður á svæðinu með myndavélina og tekur myndir af hlaupurum, sem settar verða inn á netið strax í kvöld ásamt úrslitunum.