Mikka maraþon verður ekki haldið í ár

birt 06. júní 2014

Mikka maraþon hlaupið (minimaraþon 4,2 km og 10 km) sem haldið hefur verið undanfarin 2 ár með mikilli þátttöku fjölskyldufólks og annarra (800-1000 manns), fellur því miður niður í ár vegna óviðráðanlegra aðstæðna.

Mikka maraþoninu var vel tekið af fjölskyldufólki sem vildi hefja þjóðhátíðardaginn með hreyfingu í skemmtilegu umhverfi Laugardalsins og verður vonandi skipulagt aftur strax á næsta ári.


Frá Mikka maraþoni 2013