Myndband úr lokahlaupi Hlaupaseríu FH og Bose

birt 01. apríl 2019

Hlaupaseríu FH og Bose lauk á dögunum með þriðja og síðasta hlaupinu. Algjör metþátttaka var í seríunni en þátttakendur voru yfir 1200 alls sem er gríðarleg aukning frá fyrri árum. Það er mál manna að einstaklega vel hafi tekist til með seríuna í ár, hún hafi ekki verið síðri en 2018 en Hlaupasería FH og Bose var einmitt valin götuhlaup ársins 2018 á hlaup.is fyrir skömmu.

Þórólfur með óopinbert aldursflokkamet

Þess má geta að Þórólfur Ingi Þórsson og Elín Edda Sigurðardóttir sigruðu í öllum þremur hlaupum seríunnar, Þórólfur setti m.a. tvívegis ópinbert aldursflokkamet. En þau eru svo sannarlegu ekki einu sigurvegarar Hlaupaseríu FH og Bose, allir rúmlega 1200 þátttakendur geta talið sig sigurvegarar fyrir að hafa farið kílómetrana fimm í Hafnarfirði í misgóðu veðri við allskyns aðstæður, sumir oftar en einu sinni.

Hér að neðan má sjá veglegt myndband úr lokahlaupi Hlaupaseríu FH og Bose. Frábær hlaupasería í alla staði.