Nærri því að rjúfa tveggja tíma múrinn í maraþoni

birt 06. maí 2017

Eliud Kipchoge frá Kenýu var 25 sekúndum frá því að hlaupa maraþon á undir tveimur klukkustundum í morgun, laugardag. Kipchoge sem er Ólympíumeistari í vegalengdinni hljóp á 02:00:25 sem er besti tími sem náðst hefur. Hlaupið er hinsvegar ekki viðurkennt af ýmsum orsökum, m.a var hlaupið með héra . Þess má geta að heimsmet Dennis Kimetto er 02:02:57.Hlaupið á frægustu kappakstursbrau heimsHlaupið var í hringi á hinni sögufrægu kappakstursbraut í Monza á Ítalíu.Um var að ræða tilraun sem Nike stóð fyrir en ætlunin var að reyna að rjúfa tveggja klukkustunda múrinn en tveir aðrir hlauparar tóku þátt. Því var alls ekki um hefðbundið hlaup að ræða en auk þess að halda uppi hraðanum, hvöttu hérarnir Ólympíumeistarann til dáða með hvatningarorðum á lokasprettinum. Þá sáu menn á vespum til þess gefa hlaupurum að drekka svo tímatap á drykkjarstöðvum yrði sem minnst.Þrátt fyrir áðurnefnda umgjörð er afrek Kipchoge frábært en meðalhraði hans jafnast á við að hlaupa 100m á 17 sekúndum.

Borgað til að sleppa stóru maraþonununum
Kipchoge var ánægður þegar hann kom í mark þrátt fyrir að hafa ekki náð takmarkinu. „Ég var með augun á takmarkinu allan tímann en ég var hægari en ég áætlaði síðustu kílómetrana," sagði Kipchoge eftir hlaupið.

Þess má geta að Nike hefur sætt gagnrýni í hlaupaheiminum fyrir tilraunina en þeir greiddu hlaupurunum þremur fyrir að sleppa stórum maraþonum til þess að undirbúa sig sem best. Adidas er með svipa tilraun í undirbúningi, að koma maraþonhlaupara undir tveggja klukkustunda markið. En sagan segir að sú tilraun verði í búningi lögmæts maraþonhlaups.