Nú hafa FÍFURNAR loksins vaknað úr löngum dvala og setja stefnuna á Mosfellið n.k. laugardag 4. mars.
Mæting er við sundlaugina í Mosfellsbæ kl. 9. Þaðan verður hlaupið sem leið liggur upp á melana undir Esjuhlíðum og inn eftir í átt að Völlum. Síðan áfram yfir á Þingvallaveg og niður Mosfellsdalinn þar sem endað verður í heita pottinum í sundlauginni. Vegalengdin er eithvað rúmlega 20 km. Spáin er góð fyrir laugardag svo nú er bara að taka fram utanvegaskóna og drífa sig. Reyndar er nú ekki mikið hlaupið utan vega en það gæti þurft að vaða einhverjar lækjarsprænur.
Áslaug Helgadóttir